top of page

EPLABAKA MEÐ DUMLE KARAMELLUM

  • Jan 3
  • 1 min read

Þessi kaka hefur oft verið borin fram sem eftirréttur og slær alltaf í gegn. Einföld og góð! Hér eru það Dumle karamellurnar sem setja punktinn yfir i-ið og gera eplabökuna svo einstaklega bragðgóða. Svo finnst mér líka frábært að útbúa svona í bústaðarferðunum. Þá mæli ég þurrefnin heima, tek með í boxi eða poka og  þá tekur enga stund að töfra þetta fram í bústaðnum.

Fyrir 4-6 3 epli 2-3 msk kanilsykur, eða eftir smekk 80 g hveiti 70 g tröllahafrar 100 g sykur 100 g smjör við stofuhita 10 stk Dumle karamellur

Aðferð

  1. Skrælið eplin og skerið í sneiðar.

  2. Dreifið eplasneiðunum í eldfast form og stráið kanilsykrinum yfir. Veltið eplasneiðunum vel upp úr kanilsykrinum.

  3. Blandið saman hveiti, tröllahöfrum og sykri í skál. Bætið svo smjörinu út í og hnoðið með höndunum.

  4. Dreifið deiginu yfir eplin.

  5. Skerið Dumle karamellurnar í bita. Ég sker eina karamellu í fjóra bita. Dreifið þeim yfir deigið.

  6. Bakið í 30-35 mínútur við 190°C. Frábært bera bökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page