BOLLUR MEÐ BLÁBERJUM & KARAMELLU
- Feb 15
- 1 min read
Einfaldar og gómsætar vatnsdeigsbollur fylltar með Wearther's karamellum og bláberjarjóma. Fullkomnar í bolludagskaffinu!

6 litlar vatnsdeigsbollur (ég keypti tilbúnar í þetta skiptið)
Karamellusósa (dugar fyrir fleiri bollur) 1 poki Werther’s karamellur ½ dl rjómi 5 msk flórsykur
Bláberjarjómi 3 dl rjómi 150 g Driscoll's bláber 2 msk flórsykur 1 tsk vanillusykur
Toppa með: Driscoll's bláber
Flórsykur til að sigta yfir
Aðferð
Byrjið á því að setja Werther’s karamellurnar og rjómann í pott og hitið við vægan hita þar til karamellurnar eru alveg bráðnar og sósan orðin slétt.
Takið pottinn af hitanum og hrærið 5 msk af flórsykri saman við þar til sósan verður þykk. Leyfið henni að kólna aðeins áður en hún er notuð.
Setjið bláberin í skál eða á skurðarbretti og stappið þau vel með gaffli.
Þeytið rjómann og bætið bláberjunum, 2 msk flórsykri og vanillusykri saman við og blandið varlega saman.
Skerið vatnsdeigsbollurnar í tvennt. Setjið smá karamellusósu í botninn á bollunum.
Setjið bláberjarjómann ofan á karamelluna og lokið bollunum.
Setjið síðan smá karamellusósu ofan á hverja bollu, skreytið með ferskum bláberjum og sigtið flórsykur yfir.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes


Comments