OREO BOLLA
- Jan 3
- 1 min read
Bollur með Oreorjóma, hindberjum og Milka rjómasúkkulaði eru virkilega ljúffengar. Mér finnast vatnsdeigsbollur bestar og því ætla ég að deila með ykkur uppskrift sem hefur virkað vel hjá mér. Annars finnst mér líka æðislegt að kaupa tilbúnar bollur út í búð og fylla þær eins og ég vil.

Vatnsdeigsbollur 80 g smjör 2 dl vatn 2 dl hveiti 2 stór egg
Aðferð
Byrjið á því að setja smjör og vatn í pott. Hrærið saman og hitið þar til suðan kemur upp. Takið þá pottinn af hellunni.
Blandið hveitinu saman við. Hærið vel þar til það verður að bollu, losnar frá pottinum og hættir að festast við pottinn.
Kælið og blandið einu eggi í einu saman við blönduna.
Notið tvær msk og dreifið deiginu í bollur á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
Bakið í 25-30 mínútur við 200° á blæstri. Tíminn fer eftir því hversu stórar bollurnar eru.
Oreo bolla
125 g hindber 250 g rjómi 1,5 dl Oreo kex, mulið Milka rjómasúkkulaði, hreint
Aðferð
Stappið hindber.
Myljið Oreo kex í matvinnsuvél.
Þeytið rjóma og blandið varlega saman við Oreo kexið.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði,
Fyllið bollurnar með hindberjum og Oreo rjómanum. Toppið með súkkulaðinu og smá muldu Oreo.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes








Comments