OREO ÍS
- Jan 3
- 1 min read
Updated: Jan 31
Nei halló hvað þessi ís er góður! Og hann inniheldur aðeins fimm hráefni. Ég notaði tilbúinn Oreo mulning sem er mjög þægilegt en auðvitað hægt að mylja Oreo sjálfur og nota það. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg! Ég bar ísinn fram með heitri Dumle karamellusósu og ferskum berjum en það þarf ekki, ísinn er svo góður. Mæli mikið með!

4 eggjarauður 60 g sykur 5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar ½ – ⅓ poki Oreo crumble (200-300 g)
Dumle sósa 10 Dumle karamellur ½ dl rjómi
Aðferð
Byrjið á því að léttþeyta rjómann og taka hann til hliðar.
Þeytið eggjarauður og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanilludropum við í lokin og hrærið.
Blandið eggjablöndunni varlega saman við rjómann.
Bætið svo í lokin Oreo crumble saman við og hrærið varlega.
Setjið ísinn í 26×12 cm ílangt form
Skreytið með Oreo crumble og frystið hann. Berið fram með því sem ykkur langar.
Dumle sósa
Bræðið saman karamellurnar og rjómann í potti við vægan hita og hrærið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes





















Comments