top of page

OREO MARENGSBOMBA

  • Feb 1
  • 1 min read

Geggjuð marengsbomba með Oreo crumbs, Daim og nóg af ferskum berjum. Ég bar þessa köku fram í barnaafmæli og vá hvað hún var ljúffeng. Svona tertur eru alltaf vinsælar í veislum og ég mæli mikið með þessari.

Marengs 4 eggjahvítur 200 g sykur 2 dl Oreo crumbs 

Rjómafylling 4 dl rjómi 2 dl Oreo crumbs 200 g jarðaber 150 g hindber

Daim sósa 2 stk lítil Daim (56 g) 1 dl rjómi

Toppa með: 200 g jarðaber 150 g hindber ½-1 stk lítið Daim (28 g) ½-1 dl Oreo crumbs

Aðferð

  1. Þeytið eggin í hrærivél. Blandið sykrinum saman við í smáum skömmtum og hrærið þar til blandan verður alveg stíf.

  2. Blandið Oreo crumbs varlega saman við með sleif.

  3. Útbúið tvo hringlaga botna með því að dreifa blöndunni á tvær ofnplötur þaktar bökunarpappír.

  4. Bakið við 120°C í 60 mínútur og kælið. 

  5. Skerið berin smátt og þeytið rjóma. Blandið því varlega saman ásamt Oreo crumbs.

  6. Setjið einn marengsbotn á kökudisk, dreifið rjómablöndunni ofan á og setjið hinn marengbotninn ofan á.

  7. Bræðið Daim saman við rjóma, kælið og dreifið yfir marengsinn.

  8. Stráið smátt söxuðum berjum, Oreo crumbs og söxuðu Daim súkkulaði yfir. Njótið vel.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page