LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
- Jan 3
- 1 min read
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn!

Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur
Aðferð
Þeytið eggjahvíturnar í nokkrar mínútur eða þar til þær eru byrjaðar að þykkna.
Bætið sykrinum saman við í fjórum skömmtum og þeytið vel á milli.
Bætið svo edikinu saman við í lokin og þeytir þar til marengsinn er orðinn stífur.
Mótið pavlovurnar með tveimur skeiðum í tíu kökur og dreifið á tvær ofnplötur þaktar bökunarpappír.
Bræðið eitt Toblerone súkkulaði yfir vatnsbaði (skálin má ekki snertai vatnið fyrir neðan).
Dreifið súkkulaðibráðinu (passið að það sé ekki of heitt) yfir pavlovurnar. Ca. 1 tsk af súkkulaði á hverja og eina pavlovu. Hrærið varlega í súkkulaðinu með skaftinu á skeið eða einhverju öðru mjóu sem þið finnið.
Bakið í 40-45 mínútur við 120°C á blæstri. Slökkvið á ofninum og látið kólna í 30 mínútur eða lengur með ofnhurðina opna. Gott að gera þetta kvöldinu áður og leyfa þeim að kólna í ofninum yfir nóttina.
Þeytið rjómann. Skerið berin smátt og takið innan úr ástríðu ávextinum. Skerið ¼ – ½ Toblerone smátt.
Dreifið pavlovurnar með rjómanum, berjunum, ástríðu ávextinum og Toblerone.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments