top of page
Search


JARÐARBERJARÓSIR
Jarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn eða hvenær sem er. Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem er mjög ljúffengur 🌹 Eina sem þú þarft er: Grillspjót eða kokteilpinnar Borði Driscolls jarðarber Toblerone Aðferð Skerið í jarðarberin þannig að þau mynda rósir (sjá aðferð hér: www.instagram.com/reel/C3TYaBmoAcJ/ ). Skreytið pinnana með slaufum og stingið þeim í jarðarberin. Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og be


SÚKKULAÐISMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU TOBLERONE
Þessar súkkulaðismákökur með hvítu Toblerone eru algjörlega ómótstæðilegar! Tilvaldar að baka á aðventunni. Þær eru mjúkar að innan og stökkar að utan og hvítt toblerone setur punktinn yfir i-ið. 100 g púðursykur 50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 150 g suðusúkkalaði 1 tsk vanilludropar 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 50 g möndlumjöl 100-200 g hvítt toblerone Aðferð Bræðið helminginn af suðusúkkulaðinu yfir vatnsbaði og saxið hinn helminginn í litla bita. Hrærið saman smjör og púð


LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn! Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur Aðferð Þeytið eggjahví


TOBLERONE SMÁKÖKUR
Stökkar og bragðgóðar smákökur sem tekur enga stund að útbúa. Mér finnst Toblerone svo jólalegt súkkulaði og það gerir þessar smákökur extra góðar! Ég blanda smátt söxuðu Toblerone saman við deigið ásamt því að setja stóra bita af því í deigið. 200 g mjúkt smjör 2 dl púðursykur 1 dl sykur 1 egg 1 msk vanilludropar 200 g hveiti 1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 3 stk Toblerone Aðferð Þeytið smjör og sykur þar til blandan verður ljós og kremuð. Blandið eggi og vanillud
bottom of page