SÚKKULAÐISMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU TOBLERONE
- Jan 3
- 1 min read
Þessar súkkulaðismákökur með hvítu Toblerone eru algjörlega ómótstæðilegar! Tilvaldar að baka á aðventunni. Þær eru mjúkar að innan og stökkar að utan og hvítt toblerone setur punktinn yfir i-ið.

100 g púðursykur 50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 150 g suðusúkkalaði 1 tsk vanilludropar 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 50 g möndlumjöl 100-200 g hvítt toblerone
Aðferð
Bræðið helminginn af suðusúkkulaðinu yfir vatnsbaði og saxið hinn helminginn í litla bita.
Hrærið saman smjör og púðursykur.
Blandið egginu við og hrærið þar til blandan verður létt og ljós.
Bætið við bárðnu súkkulaði og vanilludropum og hrærið.
Sigtið hveiti og lyftiduft út í blönduna og hrærið. Að lokum blandið við saxaða suðusúkkulaðinu og möndlumjöli. Kælið deigið vel.
Brjótið toblerone í bita og skerið þríhyrningana í tvennt.
Notið teskeið til þess að gera litlar kúlur úr deiginu og setjið á smjörpappír. Þær stækka vel þannig að hafið gott bil á milli þeirra. Því næst setjið toblerone bitana ofan á kúlurnar.
Bakið við 180°C í 10-12 mínútur.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments