top of page
Search


JÓLA COSMO 75
Ljúffengur jólakokteill með heimagerðu trönuberjasírópi Fyrir mér snýst fullkominn jólakokteill um að sameina fallega liti, góð hráefni og auðvelda aðferð. Heimagerða trönuberjasírópið lyftir þessum drykk á annað level og er líka hægt að nota í aðra drykki eða jafnvel á eftirrétti. Þetta er kokteill sem er ferskur, jólalegur og með smá freyðandi lúxus. Fyrir einn kokteil: 2 cl gin 2 cl Cointreau 2 cl trönuberjasíróp 2 cl ferskur lime-safi Klakar eða stór klaki með rósmarín og


PIPARKÖKU OSTAKAKA MEÐ KARAMELLUSÓSU
Þessi piparköku ostakaka er hinn fullkomni jólaeftirréttur – einföld, fljótleg og svo hátíðleg. Hún er með piparkökubotni, silkimjúkri rjómaostafyllingu, Walkers karamellusósu og bláberjum. Hvort sem þú ætlar að gleðja fjölskyldu á aðventunni eða bjóða upp á eitthvað sérstakt á jólum, þá er þessi ostakakan sem þið verðið að prófa. Botninn: 250 g piparkökur 80 g smjör, brætt Fylling: 300 g Philadelphia rjómaostur 3 msk flórsykur 3,5 dl þeyttur rjómi Toppa með: 12 stk Werther´


BLÚNDUR MEÐ SÚKKULAÐIKREMI
Blúndur með smá tvisti og ó vá hvað þær eru ljúffengar! Samlokur úr þunnum og stökkum haframjölssmákökum með súkkulaði smjörkremi á milli. Ég notaði Nusica súkkulaðismjör í kremið og það gefur svo gott bragð. Innblásturinn að uppskriftinni eru margar uppskriftir sem ég skoðaði bæði í uppskriftabókum og á netinu og þetta var útkoman. Dásamlega gott! 150 g smjör 6 dl haframjöl 2 egg 2,5 dl sykur 2,5 msk hveiti 1 tsk vanilludropar 1 tsk lyftiduft Krem 170 g smjör 250 g flórsykur


SMÁKÖKUR MEÐ TYRKISK PEBER & SÚKKULAÐI
Smákökur með Tyrkisk peber, hvítu- og dökku súkkulaði. Stökkar kökur sem gefa ekkert eftir. Að setja Tyrkisk peber í smákökur er ,,game changer’’ og ég mæli sannarlega með að þið prófið þessar. Uppskrift gerir 26 smákökur 100 g púðursykur 50 g smjörvið stofuhita 1 egg 150 g dökkt súkkulaði 1 tsk vanilludropar 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 50 g möndlumjöl 100 g hvítt súkkulaðismátt saxað 1 dl Tyrkisk Peber Aðferð Bræðið helminginn af dökka súkkulaðinu yfir vatnsbaði og


KORNFLEX JÓLANAMMI MEÐ PIPARMINTUBRAGÐI
Einfalda og gómsætt jólanammi. Það kannast eflaust margir við kornflex nammibita með súkkulaði og sírópi en það má segja að þetta konfekt sé útgáfa af því. Súkkulaði kornflex bitar með hvítu súkkulaði og karmellu fylltur Marianne brjóstsykur með piparmintubragði. Brjóstsykurinn gefur bitunum bæði skemmtilegt bragð og gerir þá jólalega. Namminamm! Mjög fallegt að setja bitana í sellofan og gefa í tækifærisgjafir í aðventunni. 180 g kornflex 300 g dökkt súkkulaði 100 g smjör 70


DUMLEMÚS
Hér kemur ofur einfaldur og mjög ljúffengur eftirréttur sem ég hef margoft. Músin hefur aðeins fjögur innihaldsefni og tekur litla stund að útbúa. Ég helli henni síðan í falleg glös, geymi hana inn í ísskáp og toppa svo með ferskum berjum. Tilvalinn eftirréttur yfir hátíðarnar. Fyrir 4 1 poki Dumle karamellur 4 msk rjómi 30 g smjör 2 eggjarauður 1 ½ dl rjómi Toppa með: Þeyttum rjóma Ferskum berjum Dumle snacks eða Dumle karamellur, smátt saxað Aðferð Bræðið Dumle karamellur,


SMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU – & LJÓSU SÚKKULAÐI
Klassískar smákökur með hvítum- og ljósum súkkulaði sem eru ótrúlega bragðgóðar og allir elska. Stökkar að utan og mjúkar að innan og svo er fljótlegt að útbúa þær. Uppskrift gerir 26-28 smákökur 1,2 dl púðursykur50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 1 tsk vanilludropar 2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 dl möndlumjöl 2 dl hvítt súkkulaði 1½ dl dökkt súkkulaði Aðferð Bræðið 1 dl af hvítu súkkulaði yfir vatnsbaði. Hrærið saman smjör og púðursykur. Bætið egginu saman við og hrærið þar ti


LITLAR JÓLAPAVLOVUR
Uppskrift af litlum pavlovum með bismark sem passar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar. Bismark brjóstsykurinn gerir pavlovurnar mjög jólalegar á bragðið og rjómakúlusósan er dásamleg. Toppið svo pavlovurnar með ykkar uppáhalds berjum. Uppskrift gerir 12 pavlovur 4 eggjahvítur 2 dl sykur 1 tsk edik 1-2 dl bismark brjóstsykur (jólastafur) 3 dl rjómi Ber eftir smekk (hindber, jarðaber, bláber eða brómber) 1 poki rjómakúlur Aðferð Myljið bismark brjóstsykur í matvinnsluvél eða


VEGAN JÓLAÍS
Bragðgóður og jólalegur ís sem inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan. 2 fernur Oatly vanillusósa 1 ferna Oatly rjómi 2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel ⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel Fersk ber


KARAMELLU- & SÚKKULAÐI SMÁKÖKUR
Það styttist í jólin og það þýðir að smákökubaksturin er hafinn! Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar – bragðgóðar, stökkar, með dökku súkkulaði og ljúffengri Werther's söltuðum karamellu. Fullkomnar fyrir þennan árstíma! Ég mæli með að prófa og deila með fjölskyldu og vinum. Uppskriftin gerir um 20-22 smákökur 115 g smjör (við stofuhita) 100 g púðursykur 50 g sykur 1 stórt egg 1 tsk vanilludropar 150 g hveiti ½ tsk lyftiduft ¼ tsk matarsódi ¼ tsk salt 100 g dökkt eða m


SMÁKÖKUR MEÐ KÓKOS & HAFRAMJÖLI
Það er svo jólalegt að baka smákökur á aðventunni og hér kemur ein gömul uppskrift sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin frá því að ég man eftir mér. Ég deildi þessari uppskrift með Hringbraut í síðustu viku og ég verð að sjálfsögðu að deila henni með ykkur líka. Ofur einfaldar og ljúffengar smákökur. Oft bökuðum við þessar smákökur mörgum sinnum yfir aðventuna þegar ég var lítil því þær kláruðust alltaf strax. Núna baka ég þær alltaf á aðventunni og þær eru alltaf jafn góðar.


SÚKKULAÐISMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU TOBLERONE
Þessar súkkulaðismákökur með hvítu Toblerone eru algjörlega ómótstæðilegar! Tilvaldar að baka á aðventunni. Þær eru mjúkar að innan og stökkar að utan og hvítt toblerone setur punktinn yfir i-ið. 100 g púðursykur 50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 150 g suðusúkkalaði 1 tsk vanilludropar 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 50 g möndlumjöl 100-200 g hvítt toblerone Aðferð Bræðið helminginn af suðusúkkulaðinu yfir vatnsbaði og saxið hinn helminginn í litla bita. Hrærið saman smjör og púð


TOBLERONE SMÁKÖKUR
Stökkar og bragðgóðar smákökur sem tekur enga stund að útbúa. Mér finnst Toblerone svo jólalegt súkkulaði og það gerir þessar smákökur extra góðar! Ég blanda smátt söxuðu Toblerone saman við deigið ásamt því að setja stóra bita af því í deigið. 200 g mjúkt smjör 2 dl púðursykur 1 dl sykur 1 egg 1 msk vanilludropar 200 g hveiti 1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 3 stk Toblerone Aðferð Þeytið smjör og sykur þar til blandan verður ljós og kremuð. Blandið eggi og vanillud


LJÚFFENGAR ANDABRINGUR & MEÐLÆTI
Franskar andabringur með steiktum kartöflum, kantarella sveppasósu og rósakáli með rjóma og parmesan er sannkallaður hátíðarmatur. Gott er að bera öndina fram með t.d. waldorfsalati yfir hátíðarnar og það er algjört „must“ að steikja kartöflurnar upp úr andafitunni. Rósakál með rjóma og parmesan setur punktinn yfir i-ið og allt rennur þetta svo ljúflega niður með góðu rauðvíni. Uppskrift fyrir 2-3 Andabringur 1 frosin andabringa frá Vallette Salt og pipar Ferskt timían Ferskt


JÓLA MÍMÓSA
Jólaleg mímósa en í henni er ljúffengt rose kampavín og trönuberjasafi. Afar góð blanda sem passar vel með brönsinum á aðventunni eða bara til að njóta hvenær sem er. Ég þek brúnirnar með kanil og hrásykri til að fá extra jólalegan drykk. Algjört nammi. Fallegu glösin eru úr Heimahúsinu og fást hér. Einn drykkur 1 dl Nicolas Feuillatte Rose Champagne 1 dl trönuberjasafi 2 msk hrásykur 1 tsk kanill Aðferð Byrjið á því að blanda saman kanil og hrásykri og dreifið á disk. Dýfið


HEITUR HUNANGS- & HAFRA KOKTEILL
Hvað er betra en ljúffengur og heitur kokteill sem iljar manni kuldanum? Heit haframjólk með hunangi og kryddblöndu, viskí og Cointreau gerir þennan kokteil svo bragðgóðan og jólalegan. Smá appelsínukeimur, kryddaður og sætur kokteill. Mæli með að nota ikaffe haframjólkina frá Oatly í drykkinn. Hún freyðir svo vel og er bragðgóð. Ég nota mjólkurflóara til að flóa mjólkina en það er ekkert mál að flóa mjólkina í potti. Ekta drykkur til að útbúa þegar þið fáið gesti í heimsókn


JÓLALEGT EGGJAPÚNS
Í aðdraganda jólanna er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og jólalegt. Ég gerði loksins eggjapúns (e. eggnog) og vá hvað þetta er góður og hátíðlegur drykkur! Eggjapúns er klassísk blanda af eggjum, sykri, rjóma, mjólk og viskí, krydduð með múskati og kanil. Það er líka svo þægilegt að gera hann í stærra magni og geyma í ísskáp – svo er bara að hella í glas þegar ykkur hentar. Uppskrift gerir 4-6 drykki 4 egg 400 ml rjómi 300 ml mjólk 90 g sykur + 1 msk sykur 120 ml Maker‘s Ma


TRÖNUBERJA GIN
Bragðgóður kokteill sem kemur manni í jólaskapið. Kokteillinn inniheldur gin, trönuberjasafa, sykursíróp, angostura bitter, rósmarín og appelsínu. Þessi blanda er alveg sérlega góð og trönuberin, appelsínukeimurinn og rósmarínið gerir drykkinn svo jólalegan og gómsætan. Fyrir einn 60 ml Roku gin 1,3 dl trönuberjasafi 2 ml sykursíróp Nokkrir dropar angostura bitter Rosmarín stilkur Appelsínu sneið Klakar Skreyta með trönuberjum eða rifsberjum Aðferð Hellið gini, trönuberjasaf


HÁTÍÐAR IRISH COFFEE
Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan. Fyrir einn 6 cl Fireball líkjör 250 ml kaffi 2 tsk púðursykur Rjómi Súkkulaðispænir Kanill Aðferð Blandið saman púðursykri og kaffi í glas


TACO MEÐ HUMRI & BEIKONI
Taco með humri, beikoni, rauðkáli, Philadelphia rjómaosti, tómötum, hvítlauks-og steinseljusósu og toppað með granateplafræum. Svo bragðgóð og einföld uppkrift. Uppskrift að 6-8 tacos 330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning) 1 msk ólífuolía 4 msk steinselja, smátt söxuð 1 hvítlauksrif, pressað eða rifið Salt & pipar Chili flögur 1 msk smjör 8-10 beikonsneiðar 6-8 litlar tortillur Philadelphia rjómaostur eftir smekk 4-6 kokteiltómatar, smátt skornir 4-5 dl rauðkál
bottom of page