top of page

JÓLALEGT EGGJAPÚNS

  • Jan 1
  • 1 min read

Í aðdraganda jólanna er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og jólalegt. Ég gerði loksins eggjapúns (e. eggnog) og vá hvað þetta er góður og hátíðlegur drykkur! Eggjapúns er klassísk blanda af eggjum, sykri, rjóma, mjólk og viskí, krydduð með múskati og kanil. Það er líka svo þægilegt að gera hann í stærra magni og geyma í ísskáp – svo er bara að hella í glas þegar ykkur hentar.

Uppskrift gerir 4-6 drykki 4 egg 400 ml rjómi 300 ml mjólk 90 g sykur + 1 msk sykur 120 ml Maker‘s Mark viskí ½ tsk vanilludropar ½ tsk kanill ½ tsk múskat Toppið með múskati, chilidufti og stjörnuanís (má sleppa)

Aðferð

  1. Skiljið eggjarauðurnar frá eggjahvítunum. Geymið eggjahvítuna til hliðar.

  2. Þeytið eggjarauður þar til blandan verður þykk og létt. Bætið sykrinum smátt saman og hrærið þangað til að blandan verður létt og ljós.

  3. Blandið rjóma, mjólk, vanilludropum, viskí, kanil og múskati saman við. Kælið.

  4. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær verða smá flöffí. Bætið 1 msk af sykri saman við og haldið áfram að þeyta í smá stund þar til þær stífna aðeins en passið að þær verði ekki alveg stífar.

  5. Blandið eggjahvítunum varlega saman við blönduna. Hellið í könnu og geymið inn í ísskáp.

  6. Berið fram með klökum og stráið múskati og chilidufti yfir og skreytið með stjörnuanís. Njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page