top of page

TRÖNUBERJA GIN

  • Jan 1
  • 1 min read

Bragðgóður kokteill sem kemur manni í jólaskapið. Kokteillinn inniheldur gin, trönuberjasafa, sykursíróp, angostura bitter, rósmarín og appelsínu. Þessi blanda er alveg sérlega góð og trönuberin, appelsínukeimurinn og rósmarínið gerir drykkinn svo jólalegan og gómsætan.

Fyrir einn 60 ml Roku gin 1,3 dl trönuberjasafi 2 ml sykursíróp Nokkrir dropar angostura bitter Rosmarín stilkur Appelsínu sneið Klakar Skreyta með trönuberjum eða rifsberjum

Aðferð

  1. Hellið gini, trönuberjasafa, sykursírópi og bitter í fallegt glas og hrærið saman.

  2. Fyllið glasið af klökum og setjið rósmarín stilk og appelsínusneið.

  3. Skreytið með trönuberjum og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page