VEGAN JÓLAÍS
- Jan 3
- 1 min read
Bragðgóður og jólalegur ís sem inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan.
2 fernur Oatly vanillusósa 1 ferna Oatly rjómi 2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel ⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel Fersk ber eftir smekk
Aðferð
Þeytið vanillusósuna þar til hún verður þykk og létt í sér. Takið hana til hliðar.
Þeytið 130 ml af rjómanum í annarri skál.
Blandið rjómanum og vanillusósunni varlega saman með sleif.
Smátt skerið súkkulaði og blandið varlega saman við vanillublönduna.
Þekjið 25×12 cm form með plastfilmu og hellið blöndunni í það. Frystið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.
Bræðið súkkulaðiáleggið ásamt 50-100 ml Oatly rjóma á vægum hita. Blandið vel saman og kælið.
Takið ísinn úr forminu með því að hvolfa honum varlega á fallegan bakka. Takið plastfilmuna af ísnum og hellið súkkulaðisósunni yfir eftir smekk.
Skreytið með berjum og berið fram með restinni af sósunni.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments