JÓLA COSMO 75
- Feb 1
- 1 min read
Ljúffengur jólakokteill með heimagerðu trönuberjasírópi Fyrir mér snýst fullkominn jólakokteill um að sameina fallega liti, góð hráefni og auðvelda aðferð. Heimagerða trönuberjasírópið lyftir þessum drykk á annað level og er líka hægt að nota í aðra drykki eða jafnvel á eftirrétti. Þetta er kokteill sem er ferskur, jólalegur og með smá freyðandi lúxus.

Fyrir einn kokteil: 2 cl gin 2 cl Cointreau 2 cl trönuberjasíróp 2 cl ferskur lime-safi Klakar eða stór klaki með rósmarín og trönuberjum 1,5 dl eða meira Cune Cava
Trönuberja sykursíróp
150 g trönuber
300 g sykur
1 dl trönuberjasafi
3 dl vatn
Aðferð:
Settjið gin, Cointreau, trönuberjasíróp og lime í kokteilhristara með klökum.
Hristu vel og hellið í fallegt glas í gegnum sigti.
Settu fallegan klaka í glasið sem inniheldur fersk trönuber og rósmarín.
Toppið með cava og njótið. Ferskur, hátíðlegur og alveg skálvænn fyrir jólin!
Trönuberjasíróp:
Setjið allt saman í pott og leyfið suðunni að koma upp – mæli með loki á pottinn!
Leyfið þessu að malla í 1-2 mínútur
Takið af hitanum og látið kólna í 5 mínútur. Þið fáið djúpt rauðleitt síróp sem bragðast ótrúlega vel með kokteilnum.
Hellið í krukku eða flösku og geymið í ísskápnum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments