SMÁKÖKUR MEÐ KÓKOS & HAFRAMJÖLI
- Jan 3
- 1 min read
Það er svo jólalegt að baka smákökur á aðventunni og hér kemur ein gömul uppskrift sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin frá því að ég man eftir mér. Ég deildi þessari uppskrift með Hringbraut í síðustu viku og ég verð að sjálfsögðu að deila henni með ykkur líka. Ofur einfaldar og ljúffengar smákökur. Oft bökuðum við þessar smákökur mörgum sinnum yfir aðventuna þegar ég var lítil því þær kláruðust alltaf strax. Núna baka ég þær alltaf á aðventunni og þær eru alltaf jafn góðar.

100 g smjör 3 dl haframjöl 1 ¼ dl kókosmjöl 1 ½ dl sykur 1 egg 1 tsk lyftiduft 1 msk hveiti Suðusúkkulaði
Aðferð
Bræðið smjörið. Hellið því yfir haframjölið og hrærið saman.
Blandið kókosmjöli, sykri, eggi, lyftidufti og hveiti vel saman við.
Dreifið deiginu með teskeið á bökunarplötu þakta bökunarpappír (passið að dreifa ekki mjög þétt).
Bakið við 190°C í u.þ.b. 5 mínútur. Kælið.
Bræðið súkkulaðið í skál yfir vatnsbaði og penslið botninn á kökunum.
Geymið á köldum stað og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti

Comments