top of page

BLÚNDUR MEÐ SÚKKULAÐIKREMI

  • Jan 3
  • 1 min read

Blúndur með smá tvisti og ó vá hvað þær eru ljúffengar! Samlokur úr þunnum og stökkum haframjölssmákökum með súkkulaði smjörkremi á milli. Ég notaði Nusica súkkulaðismjör í kremið og það gefur svo gott bragð. Innblásturinn að uppskriftinni eru margar uppskriftir sem ég skoðaði bæði í uppskriftabókum og á netinu og þetta var útkoman. Dásamlega gott!

150 g smjör

6 dl haframjöl

2 egg

2,5 dl sykur

2,5 msk hveiti

1 tsk vanilludropar

1 tsk lyftiduft

Krem

170 g smjör

250 g flórsykur

1 lítið egg

200 g Nucia súkkulaðismjör

100 g dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Bræðið smjör og blandið saman við haframjölið.

  2. Þeytið í hrærivél egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.

  3. Blandið smjörinu og haframjölinu saman við ásamt hveiti, vanilludropum og lyftidufti.

  4. Útbúið kúlur með ½-1 tsk af deiginu og dreifið á plötu þakta bökunarpappír. Passið að hafa gott bol á milli þar sem deigið dreifir úr sér.

  5. Bakið í 6-8 mínútur við 180°C eða þar til kökurnar eru orðnar gylltar og stökkar.

  6. Blandið öllum hráefnunum fyrir kremið saman í hrærivél og hrærið vel saman.

  7. Dreifið kreminu með sprautupoka á helminginn af kökunum og lokið kökunum með hinum helmingnum.

  8. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dreifið yfir kökurnar eftir smekk. Mæli með að geyma kökurnar í frysti og njótið vel.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page