top of page

KRÖNSÍ DAIM SMÁKÖKUR

  • Jan 3
  • 1 min read

Updated: Feb 5

Hvað er betra en Daim súkkulaði í smákökur? Mjúkar að innan og stökkar að utan. Daim súkkulaðið gerir kökurnar bæði ljúfar og krönsí. Ég hvet ykkur til að prófa þessar á aðventunni.


Uppskrift gerir 20 smákökur

200 g smjörvið stofuhita

 150 g púðursykur

 50 g sykur

 2 egg

 1 tsk vanilludropar

 300 g hveiti

 1 tsk matarsódi

 0,25 tsk salt

 4 dl Daim kúlur

 1 dl saxað Milka súkkulaði

Toppa með

 Milka súkkulaði

 Daim kúlur

Aðferð

  1. Hrærið saman í hrærivél smjör, púðursykur og sykur í nokkrar mínútur.

  2. Bætið út í eggi og vanilludropum og hrærið saman.

  3. Bætið hveiti, matarsóda, salti og hærið vel saman.

  4. Blandið Daim kúlum saman við með skeið. Gott að kæla deigið í 30-60 mínútur.

  5. Notið matskeið til að útbúa kúlur úr deiginu og notið hendurnar til að rúlla í kúlur.

  6. Dreifið þeim á bökunarplötu þakta bökunarpappír og passið að hafa bil á milli þeirra.

  7. Bakið í 8-10 mínútur við 180°C.

  8. Skreytið með bræddu Milka súkkulaði og söxuðum Daim kúlum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page