top of page

SMÁKÖKUR MEÐ TYRKISK PEBER & SÚKKULAÐI

  • Jan 3
  • 1 min read

Smákökur með Tyrkisk peber, hvítu- og dökku súkkulaði. Stökkar kökur sem gefa ekkert eftir. Að setja Tyrkisk peber í smákökur er ,,game changer’’ og ég mæli sannarlega með að þið prófið þessar.


Uppskrift gerir 26 smákökur

100 g púðursykur

 50 g smjörvið stofuhita

 1 egg

 150 g dökkt súkkulaði

 1 tsk vanilludropar

 100 g hveiti

 1 tsk lyftiduft

 50 g möndlumjöl

 100 g hvítt súkkulaðismátt saxað

 1 dl Tyrkisk Peber


Aðferð

  1. Bræðið helminginn af dökka súkkulaðinu yfir vatnsbaði og saxið hinn helminginn í litla bita.

  2. Hrærið saman smjör og púðursykur.

  3. Blandið egginu við og hrærið þar til blandan verður létt og ljós.

  4. Bætið útí súkkulaðibráðinu og vanilludropum og hrærið saman.

  5. Sigtið hveiti og lyftiduft út í blönduna og hrærið.

  6. Brjótið Tyrkisk Peber brjóstsykurinn í litla bita með því að merja hann.

  7. Blandið saxaða dökka súkkulaðinu, hvíta súkkulaðinu, Tyrkisk Peber og möndlumjöli saman við.

  8. Kælið deigið í 30-60 mínútur.

  9. Notið teskeið til þess að gera litlar kúlur úr deiginu og setjið á bökunarplötu þakta smjörpappír. Þær stækka vel þannig að hafið gott bil á milli þeirra.

  10. Bakið við 180°C í 10-12 mínútur og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page