top of page

SMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU – & LJÓSU SÚKKULAÐI

  • Jan 3
  • 1 min read

Klassískar smákökur með hvítum- og ljósum súkkulaði sem eru ótrúlega bragðgóðar og allir elska. Stökkar að utan og mjúkar að innan og svo er fljótlegt að útbúa þær.

Uppskrift gerir 26-28 smákökur 1,2 dl púðursykur50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 1 tsk vanilludropar 2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 dl möndlumjöl

2 dl hvítt súkkulaði 1½ dl dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Bræðið 1 dl af hvítu súkkulaði yfir vatnsbaði.

  2. Hrærið saman smjör og púðursykur.

  3. Bætið egginu saman við og hrærið þar til blandan verður létt og ljós.

  4. Bætið við hvíta súkkulaðinu og vanilludropum og hrærið.

  5. Sigtið hveiti og lyftidufti út í blönduna og hrærið. 

  6. Að lokum bætið við möndlumjöli, 1 dl af hvítu súkkulaði og 1½ dl af dökku súkkulaði. Hrærið rólega saman. Gott að kæla deigið í 30-60 mínútur.

  7. Notið teskeið og hendurnar til þess að móta litlar kúlur úr deiginu. Dreifið á smjörpappírsklædda bökunarplötu og  passið að hafa gott bil á milli þeirra.

  8. Bakið við 180°C í 8-10 mínútur og njótið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page