LITLAR JÓLAPAVLOVUR
- Jan 3
- 1 min read
Uppskrift af litlum pavlovum með bismark sem passar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar. Bismark brjóstsykurinn gerir pavlovurnar mjög jólalegar á bragðið og rjómakúlusósan er dásamleg. Toppið svo pavlovurnar með ykkar uppáhalds berjum.

Uppskrift gerir 12 pavlovur 4 eggjahvítur 2 dl sykur 1 tsk edik 1-2 dl bismark brjóstsykur (jólastafur) 3 dl rjómi Ber eftir smekk (hindber, jarðaber, bláber eða brómber) 1 poki rjómakúlur
Aðferð
Myljið bismark brjóstsykur í matvinnsluvél eða í morteli.
Stífþeytið eggjahvíturnar. Bætið sykri rólega við og hrærið.
Hrærið edik út í og í lokin 1½ dl af bismark brjóstsykrinum. Dreifið blöndunni í litlar kökur á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 1 og ½ klst við 150°C.
Bræðið rjómakúlur með 1-2 msk rjóma í potti. Þeytið rjóma og skerið ber í bita.
Dreifið rjómanum og berjunum á pavlovurnar.
Að lokum stráið bismark mulningnum yfir pavlovurnar eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti


Comments