FRENCH TOAST MUFFINS
- Mar 30
- 1 min read
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með.

260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita
4 stk egg
½ dl mjólk
½ dl rjómi
0,6 dl sykur
½ tsk kanill
¼ tsk múskat
½ tsk vanilludropar
12 stk bollakökuform
Til að bera fram:
Driscolls jarðarber, skorin í sneiðar
Driscolls hindber
Hlynsýróp
Flórsykur til að sáldra yfir
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C
Skerið brauðið í litla teninga
Þeytið saman egg, mjólk, rjóma, sykur, kanil, múskat og vanillu í skál
Blandið brauðbitunum saman við eggjablönduna. Hrærið varlega saman þar til brauðið hefur drukkið í sig vökvann
Skiptið blöndunni í muffinsform og þrýstið aðeins niður með skeið
Bakið í 20-25 mínútur eða þar til muffinsin eru orðin gullinbrún og stökk að ofan
Berið fram með ferskum Driscolls jarðarberjum og hindberjum. Stráið flórsykri og hellið hlynsírópi ofan á og njótið vel.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments