top of page

PÁSKA EFTIRRÉTUR MEÐ HINDBERJUM & MINI EGGJUM

  • Feb 1
  • 1 min read

Fljótlegur og fallegur eftirréttur með marengs, hindberjum og Cadbury mini eggjum! Fullkominn fyrir páskana, allt sett í litlar skálar og toppað með Cadbury mini eggjum og bræddu hvítu súkkulaði. Þið getið keypt tilbúinn marengsbotn til að einfalda ferlið og einblínt á að njóta.

Uppskrift fyrir 6 1 marengsbotn (tips: þægilegt að kaupa bara tilbúinn) 4 dl rjómi 125 g fersk hindber frá Driscoll’s (mest notuð stöppuð, smá tekin frá til að skreyta)

1 tsk vanilludropar

3 msk flórsykur

100 g hvítt súkkulaði, brætt yfir vatnsbaði

Cadbury mini egg (eftir smekk)


Aðferð:

  1. Þeytið rjómann þar til hann fer að þykkna. Bætið vanilludropum og flórsykri saman við og haldið áfram að þeyta þar til hann er stífur og léttur.

  2. Stappið um það bil 100 g af hindberjunum og blandið varlega saman við rjómann. Geymið restina (um 25 g) til að toppa með.

  3. Myljið marengsbotninn gróft og dreifið í botninn á litlum skálum eða glösum.

  4. Setjið hindberjarjómann yfir marengsinn.

  5. Toppið með ferskum hindberjum, bræddu hvítu súkkulaði og Cadbury mini eggjum.

  6. Berið strax fram eða geymið í kæli þar til eftirréttartíminn kemur og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page