top of page
Search


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


BRÓMBERJA MARGARITA
Hvernig væri að skála um helgina í ljúffengum kokteil í tilefni hrekkjavökunnar? Kokteillinn samanstendur af Cointreau, Mezcal, brómberjum, timían, lime og sírópi og bragðast ótrúlega vel. Brómberin gera kokteilinn sérlega ferskan en gefa honum einnig drungalegt yfirbragð sem á vel við á hrekkjavökunni. Einn kokteill 5-6 brómber 2 fersk timían strá 2 cl safi úr lime 2 cl sykursíróp 2 cl Cointreau 5 cl Mezcal Klakar Skraut á glas 1 tsk sjávarsalt 1 tsk skógarberjate Sykursíró


FROSIN MANGO- & JALAPENO MARGARITA
Einstaklega ljúffengur drykkur sem er bæði sætur og rífur aðeins í. Frosið mangó, jalapeno, tequila, Cointreau, lime, síróp og nóg af klökum. Ég mæli með að bæta aðeins við jalapeno ef að þið viljið láta hann rífa í eða minnka magnið ef að þið viljið hafa hann mildari. Mér finnst best að hafa hann sterkan, það er svo gott með sæta mangó bragðinu. Einn drykkur 4 cl Tequila Sauza Silver 2 cl Cointreau 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp (eða venjulegt síróp) ½ ferskur jalapeno 1


STOKKRÓSAR MARGARITA
Ótrúlega ljúffengur kokteill sem er sætur, saltur og súr. Dásamleg blanda! Margarita er klassískur og vel þekktur kokteill frá Mexíkó sem samanstendur af tequila, Cointreau, safa úr lime og klökum. Stokkrósar sírópið gerir drykkinn einstaklega bragðgóðan og ljúfan. Svo finnst mér algjört „must“ að setja salt á glasbrúnina. Það setur punktinn yfir-ið. En auðvitað má alveg sleppa því. Þessi drykkur er fullkominn með tacoveislunni eða til að njóta um helgina. Skál! Fyrir einn 6


ESPRESSO MARGARITA
Óvá hvað þessi drykkur er ljúffengur! Tequila, Cointreau, kaffisíróp og lime er dásamleg og frískandi blanda sem kemur á óvart. Mæli með að skála í þessum um helgina. Fyrir einn 3 cl Tequila blanco 3 cl Cointreau 3 cl kaffisíróp 2 cl safi úr lime Kaffisíróp 2 dl kaffi 2 dl sykur Aðferð Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið. Kaffisíróp Blandið saman kaffi og s


JARÐARBERJA MARGARITA
Frosin jarðarberja margarita er einstaklega ljúffengur drykkur sem auðvelt er að útbúa. Ég var nánast búin að gleyma þessum kokteil en í gegnum tíðina hef ég pantað mér hann oft og mörgum sinnum erlendis og þá sérstaklega á mexíkóskum veitingastöðum. Ég ákvað að prófa að gera hann sjálf og namm hvað hann heppnaðist vel. Það eina sem þarf að gera er að setja allt hráefnið í blender og hræra. Ég mæli með að þið prófið þennan! 4 cl Tequila Sauza Silver 2 cl cointreau 2 cl safi ú
bottom of page