ESPRESSO MARGARITA
- Jan 1
- 1 min read
Óvá hvað þessi drykkur er ljúffengur! Tequila, Cointreau, kaffisíróp og lime er dásamleg og frískandi blanda sem kemur á óvart. Mæli með að skála í þessum um helgina.

Fyrir einn 3 cl Tequila blanco 3 cl Cointreau 3 cl kaffisíróp 2 cl safi úr lime
Kaffisíróp 2 dl kaffi
2 dl sykur
Aðferð
Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur.
Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið.
Kaffisíróp
Blandið saman kaffi og sykri i í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið.
Hellið sírópinu ofan í flösku eða krukku í gegnum sigti og geymið í ísskáp. Passið að sírópið sé orðið kalt þegar þið notið það í kokteilinn.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti









Comments