SPICY PASSION MARGARITA
- Jun 26
- 1 min read
Margarita er svo sumarlegur kokteill og hér er drykkurinn extra ljúffengur með jalapeno og ástaraldin. Svo ljúffeng blanda sem þið verðið að prófa! Elska svona "spicy" kokteila.

1 drykkur
50 ml Los Tres Toños Blanco tequila
30 ml Cointreau
1 ástaraldin (passion fruit)
25 ml ferskur límónusafi
10 ml sykursíróp
2–4 jalapeno sneiðar
Tajín á glasbrúnina
Aðferð
Nuddið límónubát á glasbrúnina og veltið henni upp úr Tajín.
Skafið kvoðuna úr ástaraldininu og setjið í hristarann ásamt jalapeno, tequila, Cointreau, límónusafa og sykursírópi. Merjið þessu létt saman
Bætið vel af ís út í og hristið í 15–20 sekúndur.
Sigtið yfir í glas fyllt af ferskum ís. Skreytið með hálfu ástaraldini og njótið.
🌶️ Ef þú vilt hana aðeins meira "spicy", láttu jalapeño liggja í shakernum í 2–3 mínútur áður en þú hristir. Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn
Blandið saman vatn og sykur í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Vínnes



Comments