top of page
Search


SPICY PASSION MARGARITA
Margarita er svo sumarlegur kokteill og hér er drykkurinn extra ljúffengur með jalapeno og ástaraldin. Svo ljúffeng blanda sem þið verðið að prófa! Elska svona "spicy" kokteila. 1 drykkur 50 ml Los Tres Toños Blanco tequila 30 ml Cointreau 1 ástaraldin (passion fruit) 25 ml ferskur límónusafi 10 ml sykursíróp 2–4 jalapeno sneiðar Tajín á glasbrúnina Aðferð Nuddið límónubát á glasbrúnina og veltið henni upp úr Tajín. Skafið kvoðuna úr ástaraldininu og setjið í hristarann ásamt


TYRKISK PASSOA
Það er svo gaman að bjóða uppá girnilega kokteila! Að þessu sinni er helgarkokteillinn ekki af verri endanum en hann bragðast eins og besta sælgæti! Ég gerði hann í samstarfi við Innnes og hann minnir á brjóstsykurinn góða sem er bleikur og svartur að lit og hefur verið vinsæll lengi. Passoa, romm, trönuberjasafi, klakar og tyrkisk peber er mjög góð blanda og gerir þennan kokteil hættulega góðan! Mæli klárlega með að skála í þessum um helgina. Uppskrift að einum kokteil 3 cl


PORNSTAR MARTINI
Mjög bragðgóður kokteill sem er bæði sætur og súr með vanillu- og ástaraldini. Hann inniheldur vodka, passoa, ástaraldin, vanillu sykursíróp, sítrónusafa og egg. Vinkona mín var búin að mæla með þessum drykk svo ég varð bara að prófa að útbúa hann og hann tikkar í öll boxin. Mæli með að þið brettið upp ermarnar og prófið þennan um helgina ♥ Fyrir 1 15 ml Passoa 40 ml vodka 25 cl safi úr sítrónu 25 cl Vanillu sykursíróp ½ ástaraldinn 1 egg eða 25 ml kjúklingabaunasafi (Mjög


ÁSTARALDIN & VANILLU GIN
Ljúffengur kokteill með ástaraldini, sítrónu, sykursírópi með vanillu, gini og eggjahvítu. Þessi kokteill er algjört nammi en samt svo frískandi. Ég er alltaf svo hrifin af kokteilum sem innihalda eggjahvítu og sítrónu. Áferðin á drykknum verður svo góð og toppurinn yfir i-ið er froðan. 1 kokteill 5 cl Roku gin 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp með vanillu 1 ástaraldin 1 eggjahvíta Klakar Sykursíróp með vanillu 100 g sykur 1 dl vatn 2 tsk vanillu extract Aðferð Hellið gini
bottom of page