ÁSTARALDIN & VANILLU GIN
- Jan 1
- 1 min read
Ljúffengur kokteill með ástaraldini, sítrónu, sykursírópi með vanillu, gini og eggjahvítu. Þessi kokteill er algjört nammi en samt svo frískandi. Ég er alltaf svo hrifin af kokteilum sem innihalda eggjahvítu og sítrónu. Áferðin á drykknum verður svo góð og toppurinn yfir i-ið er froðan.

1 kokteill 5 cl Roku gin 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp með vanillu 1 ástaraldin 1 eggjahvíta Klakar
Sykursíróp með vanillu 100 g sykur 1 dl vatn 2 tsk vanillu extract
Aðferð
Hellið gini, safa úr sítrónu, sykursírópi með vanillu og eggjahvítu í kokteilahristara ásamt innihaldinu úr ástaraldini. Hristið vel í 15 sekúndur.
Bætið klökum saman við (mér finnst best að hafa þá stóra) og hristið í 30 sekúndur.
Hellið í glas og skreytið með ástaraldin. Njótið
Aðferð
Setjið vatn, sykur og vanillu extract í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti









Comments