top of page

JARÐARBERJA BELLINI

  • Jan 1
  • 1 min read

Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið.

Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota eða í blender.

  2. Hellið 30-50 ml af jarðaberjablöndunni í fallegt glas.

  3. Því næst hellið Prosecco og hrærið varlega í drykknum.

  4. Skreytið með jarðaberi og njótið.

Sykursíróp

  1. Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott. 

  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  3. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page