FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN
- Jan 1
- 2 min read
Ferskt og gott kjúklingasalat með kjúklingabringum, ferskum aspas, stökkri hráskinku, jarðaberjum, avókadó, parmigiano reggiano ásamt fleiri dásemdar hráefnum í ferskri salatdressingu. Þessi samsetning lætur bragðlaukana gjörsamlega dansa. Hvítlauks grillolían frá Caj P gerir kjúklinginn svo einstaklega bragðgóðan. Ég er búin að nota þennan kryddlög ansi mikið í sumar enda passar hann með mörgu. Mæli með að bera þetta fram með volgu hvítlauksbrauði og glasi af köldu rósavíni með réttinum ef þið eruð í þannig stuði.

Fyrir 3 3 kjúklingabringur frá Rose poultry 1 dl Caj P grillolía með hvítlauk 10 ferskir aspasstilkar, skornir í bita ÓlífuolíaSalt & pipar 70 g hráskinka 1 msk hlynsíróp 125 g salatblanda 10-12 jarðaber frá Driscolls 10-12 kokteiltómatar Rauðlaukur eftir smekk 1-2 avókadó Parmigiano Reggiano eftir smekk
Salatdressing 80 ml ólífuolía 4 msk ferskur appelsínusafi Safi úr ½ sítrónu 1 tsk salt 2 hvítlauksrif, pressuð 1 dl fersk steinselja
Aðferð
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt (má sleppa). Blandið þeim saman við grillolíuna í skál og leyfið þeim að marinerast í 30 mínútur eða lengur.
Grillið kjúklinginn í 15-20 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Skerið hann í sneiðar.
Dreifið hráskinku og aspas á ofnplötu þaktri bökunarpappír. Penslið hráskinkuna með hlynsírópi og dreifið ólífuolíu, salti og pipar á aspasinn. Bakið í 8-10 mínútur við 180°C. Passið að hráskinkan brenni ekki. Brjótið hráskinkuna í minni bita.
Skerið jarðaber, kokteiltómata, rauðlauk og avókadó í bita eftir smekk.
Dreifið salatblöndu í botninn á stórri fallegri skál. Því næst dreifið þið rauðlauk, kjúklingi, hráskinku, aspas, jarðaberjum, tómötum og avókadói.
Hellið salatdressingunni jafnt yfir og stráið rifnum parmesan osti (parmigiano reggiano) yfir allt saman. Berið fram með meiri parmesan osti og njótið.
Salatdressing
Smátt skerið steinseljuna.
Hrærið saman ólífuolíu, appelsínusafa, sítrónusafa, salti, pressuðum hvítlauksrifjum og steinselju í skál.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments