top of page

TACO Í SALATBLÖÐUM MEÐ KÍNÓA OG RISARÆKJUM

  • Jan 1
  • 1 min read

Taco í salatblöðum er einfaldur, hollur og góður réttur. Í þessum rétti nota ég salatblöð í staðinn fyrir tortillur og fylli þær með kínóa, avókadó, kokteiltómötum, risarækjum, chili mayo, fetaosti og granateplum.

Taco fyrir einn (þrjú taco á mann) 9 risarækjur, óeldaðar 1 hvítlauksrif, pressað Chili explosion Salt og pipar Ólífuolía 3 salatblöð, best að nota romaine salat Eldað kínóa eða Express quinoa (tilbúið kínóa) 1 lítið avókadó 6 litlir tómatar Safi úr ¼ lime Chili mayo eftir smekk Stappaður fetakubbur eftir smekk Granatepli eftir smekk

Aðferð

  1. Blandið saman risarækjum, ólífuolíu, hvítlauksrifi, chili explosion, salti og pipar

  2. Steikið á pönnu upp úr ólífuolíu þar til rækjurnar eru fulleldaðar og bleikar (tekur nokkrar mínútur).

  3. Smátt skerið avókadó og tómata. Kreistið lime safa yfir og blandið saman.

  4. Raðið á kálblöðin kínóa, avókadó- og tómatablöndunni, risarækjunum, chili mayo, stöppuðum fetakubb og granatepli.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page