RISARÆKJUTEMPURA TACO
- Jan 1
- 2 min read
Ég elska taco og er alltaf að prófa eitthvað nýtt í tacogerð. Í þessar uppskrift eru risarækjur sem er alltaf gott í taco. Að djúpsteikja risarækjur í tempura deigi er vægast sagt ótrúlega gott! Svo eru þær líka góðar einar sér og jafnvel með sósunni. Það er í raun ekkert mál að djúpsteikja. Það tekur enga stund og algjörlega þess virði. Sriracha majónesið og salatið passar sérlega vel með þessu. Þið hreinlega verðið að prófa og tilvalið að útbúa á taco tuesday eða bara hvenær sem er!

Fyrir tvo (þrjú taco á mann) 6 litlar tortillur, soft taco 18 risarækjur, hráar 1-2 hvítlauksrif, pressað Chili flögur Salt og pipar 1-2 msk Ólífuolía Olía til djúpsteikingar
Tempura deig 130 g hveiti + smá auka ¼ tsk matarsódi 1 eggjarauða 220 ml sódavatn, mjög kalt
Kínakálsalat Kínakál, 4 blöð 2 tómatar 2-3 msk rauðlaukur ½-1 rautt chili 1-2 avókadó Safi úr ½ lime Salt og pipar
Sriracha mayo 4 msk majónes 1 tsk sriracha sósa 1-2 msk ferskur kóríander, smátt saxað Safi úr ½ lime
Toppa með ferskum kóríander, eftir smekk
Aðferð
Blandið saman í skál risarækjum, ólífuolíu, hvítlauksrifi, chili flögum, salti og pipar.
Því næst gerið þið tempura deigið. Blandið saman hveiti og matarsóda í skál. Hrærið saman eggjarauðu og sódavatni og blandið saman við hveitiblönduna. Saltið og piprið eftir smekk. Haldið tempura blöndunni kaldri því þá verður deigið stökkara og betra.
Hellið olíu í rúmgóðan pott þannig að olían þeki risarækjurnar. Hitið olíuna. Gott ráð er að dýfa tréskafti ofan í t.d. á trésleikju og ef að það sýður (bubblar) þá er olían tilbúin.
Hellið hveiti á disk og veltið risarækjunum upp úr því. Að því loknu veltið þeim upp úr tempura deiginu og steikið upp úr olíunni þangað til að rækjurnar eru orðnar gylltar og stökkar. Ég nota stáltangir í þetta verk. Það tekur í kringum 2 mínútur að fullelda rækjurnar.
Steikið tortillurnar upp úr smá olíu og fyllið þær með salatinu, risarækjunum, sósunni og toppið svo með kóríander.
Kínakálsalat
Skerið kínakál, tómata, rauðlauk, avókadó og chili smátt. Kreistið safa úr lime og saltið og piprið. Blandið öllu vel saman.
Sriracha sósa
Blandið saman majónesi, sriracha sósu, kóríander og safa úr lime.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti


Comments