top of page

GRÆNMETIS TOSTADAS

  • Jan 1
  • 1 min read

Þessar tostadas eru stökkar og dásamlega bragðgóðar ásamt því að vera mjög fljótlegar í bígerð. Tostadas þýðir „ristað“ á spænsku, en rétturinn er mexíkóskur og inniheldur ristaða eða djúpsteikta tortillu. Í þessari uppskrift þá ofnbaka ég bæði tortillurnar og grænmetið, en það er afar fljótleg og mjög þægileg aðferð. Ég er dugleg að prófa mig áfram í grænmetisréttum og þessi er alveg sérlega góður.


Uppskrift fyrir tvo. Tvö til þrjú tostadas á mann

6 litlar tortillur, soft taco (ég nota frá Santa maria sem fæst í Hagkaup)

Ólífuolía eða önnur góð olía

400-450 g blómkál og brokkólí

Chili explosion

Cumin

Salt og pipar

1 dl Panko brauðraspur

1 dl fetakubbur, stappaður

Rjómaostur

Guacamole

2 avókadó

2 msk sýrður rjómi

Safi úr 1/2 lime

2 msk kóríander

Salt og pipar

Chili flögur

1 msk blaðlaukur, smátt skorinn

1 tómatur, fræhreinsaður og smátt skorinn

Toppa með stöppuðum fetakubbi og smátt söxuðum kóríander

Aðferð

  1. Skerið blómkál og brokkólí smátt og setjið í eldast form.

  2. Dreifið slatta af olíu yfir og hrærið saman við. Kryddið eftir smekk.

  3. Hrærið panko raspinum og fetaostinum saman og dreifið yfir blómkálið og brokkólíið.

  4. Bakið í 15-20 mín við 200°C.

  5. Penslið tortillurnar báðum meginn með olíu og dreifið á bökunarplötu þakta pökunarpappír.

  6. Bakið í 4-5 mín við 200°C og snúið þeim við. Bakið þær í aðrar 4-5 mín eða þar til þær verða stökkar.

  7. Smyrjið rjómaosti á tilbúnu kökurnar. Dreifið blómkáls-og brokkólíblöndunni yfir og toppið með guacamole,  smá fetaosti og kóríander.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page