TACO MEÐ BUFFALO KJÚKLINGI
- Jan 1
- 1 min read
Taco með kjúklingi í buffalo sósu, hvítkáli, guacamole og gráðostasósu klikkar ekki! Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi buffalo- og gráðostasósu og uppáhaldið mitt er taco. Mjög þægilegt að nota afgang af heilum kjúkling frá því daginn áður í þennan rétt. Mér finnst frábært að útbúa kvöldmat sem hægt er að nýta í annan rétt daginn eftir.

Mæli með þremur taco á mann
Rifinn kjúklingur (ég notaði restina af heilum kjúklingi sem við vorum með daginn áður) Franks hot sauce buffalo Litlar tortillur, soft tacos (fæst t.d. í Hagkaup) Hvítkál, skorið í þunnar ræmur
Gráðostasósa 20-30 g stappaður gráðostur 3 msk majónes 2 msk sýrður rjómi Safi úr ½ lime Salt & pipar
Guacamole 3 avókadó Safi úr 1 lime 1-2 msk kóríander, smátt skorið Chiliflögur Salt og pipar 2 tómatar, smátt skornir 2 msk rauðlaukur, smátt skorinn
Aðferð
Byrjið á því að útbúa guacamole. Stappið saman avókadó, safa úr lime, kóríander, chiliflögur, salt og pipar. Blandið svo tómötum og rauðlauk saman við með skeið.
Því næst útbúið gráðostasósuna. Blandið saman stöppuðum gráðosti, majónesi, sýrðum rjóma, safa úr lime, salti og pipar í skál.
Skerið hvítkál í þunnar ræmur.
Blandið saman rifnum kjúklingi og buffalo sósu. Dreifið honum í eldfast form eða á bökunarplötu þöktum bökunarpappír.
Bakið í ofni í 10 mín við 190°C eða þar til kjúklingurinn er orðinn heitur.
Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund.
Raðið hvítkáli í botninn á tortillunum, guacamole, kjúklingnum og svo sósunni. Svo er bæði gott og fallegt að toppa taco-in með ferskum kóríander.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments