top of page

TACO MEÐ KJÚKLINGI OG FERSKUM MAÍS

  • Jan 1
  • 1 min read

Mjúkt taco með kjúklingi, ferskum maís, fetaosti, avókadó, tómötum og kóríander. Þetta er svakalega góð blanda! Toppurinn yfir i-ð er maís- og fetaostablandan – hún er svo góð að ég get borðað hana eintóma með skeið. Nammi!

Ég mæli með þremur taco á mann Litla tortillur 3 kjúklingabringur 1 tsk chipotle krydd 1 tsk cumin 1 tsk salt 1 tsk laukduft 2 msk ólífuolía Safi úr ½ lime Hvítkál (má sleppa) 1-2 avókadó 1-2 tómatar 1-2 msk safi úr fersku lime Ferskur kóríander, smátt skorinn

2 ferskir maískólfar 2 msk smjör 2 dl fetakubbur, stappaður 2 msk majónes 1 tsk cayenne pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að setja maískólfana í álpappír, dreifið smjöri yfir þá og lokið álpappírnum. Bakið í 30 mínútur við 190°C

  2. Skerið kjúklinginn í litla bita og setjið í skál. Kryddið með chipotle kryddi, cumin, salti og laukdufti og dreifið ólífuolíu og lime yfir allt. Hrærið vel saman.

  3. Steikið kjúklinginn upp úr ólífuolíu í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn.

  4. Þegar maískólfarnir eru tilbúnir þá skerið þið maískornin af þeim og setjið í skál. Blandið stöppuðum fetakubbi, majónesi og cayenne pipar saman við maísinn og hrærið vel saman.

  5. Skerið avókadó og tómata smátt og blandið saman við safa úr lime.

  6. Skerið hvítkálið í litlar ræmur.

  7. Steikjið tortillurnar upp úr smá olífuolíu þar til þær verða rétt gylltar á lit.

  8. Að lokum raðið hvítkálinu, avókadó og tómötum, kjúklingnum, maís-og fetablöndunni og ferskum kóríander á tortillurnar.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page