top of page

QUESADILLA MEÐ EDAMAME- & PINTO BAUNUM

  • Jan 1
  • 2 min read

Ég gerði þessar ofur ljúffengu og fljótlegu quesadilla í samstarfi við Innnes. Þær eru fylltar með edamame- og pinto baunum, rjómaosti, blaðlauk, spínati, cheddar osti og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Ég geri þessar oft enda eru þær einstaklega fljótlegar í undirbúningi. Mér finnst æðislegt að eiga til edamame baunir í frystinum og alltaf gott að eiga baunir í dós.

Fyrir 3-4 Uppskriftin gerir þrjár quesadilla

6 stk tortillur (ég nota Mission tortillur með grillrönd (1 pkn)) 6 msk Philadelphia rjómaostur 1 dl blaðlaukur, smátt skorinn 350-400 g edamame baunir 400 g pinto baunir Ólífuolía 3 lúkur spínat 4 dl rifinn cheddar ostur Chili flögur Cayenne pipar Cumin Sýrður rjómi Ferskur kóríander

Guacamole 3 avókadó 2 msk ferskur kóríander Safi úr ½ lime Salt & pipar Chili flögur 2 tómatar, smátt skornir 1 msk rauðlaukur, smátt skorinn

Aðferð

  1. Steikið edamame- og pinto baunir upp úr olífuolíu í 6-8 mínútur. Kryddið þær með cumin, cayenne pipar, salti og pipar.

  2. Smyrjið þrjár tortillur með rjómaosti og dreifið smátt skornum blaðlauk yfir þær.

  3. Því næst dreifið edamame- og pinto baununum yfir og svo spínati.

  4. Stráið rifnum cheddar osti yfir en takið frá 1 dl af ostinum.  Kryddið með chili flögum eftir smekk og lokið tortillunum.

  5. Penslið ólífuolíu á lokuðu tortillurnar og dreifið restinni af cheddar ostinum yfir þær.

  6. Bakið í 8-10 mínútur við 190°C eða þar til þær eru orðnar stökkar og osturinn bráðnaður.

  7. Á meðan quesadilla er að bakast þá gerið þið guacamole. Blandið saman avókadó, ferskum kóríander, safa úr lime, chili flögum, salti og pipar með töfrasprota eða stappið vel saman. Því næst blandið þið tómötum og rauðlauk saman við með skeið.

  8. Berið réttinn fram með guacamole, sýrðum rjóma og ferskum kóríander.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page