top of page
Search


EXTRA STÖKKT TACO MEÐ KJÚKLINGABAUNUM
Tacos með stökkum kjúklingabaunum, heimagerðu tómatsalsa, cheddar osti, salati, guacamole og fetaosti. Algjört nammi! Það er eitthvað svo ótrúlega gott að setja harðar tacoskeljar inn í mjúkar tortillur með sýrðum rjóma og ost á milli. Mæli með að útbúa ofnbakað heimagert tómatsalsa sem tekur enga stund að útbúa og alveg þess virði. Ég notaði Biona kjúklingabaunir sem eru lífrænt ræktaðar og mjög góðar. Fyrir fjóra 1 Biona organic chickpeas Krydd: ¼ tsk reykt paprika, ¼ tsk


GRÆNMETIS TOSTADAS
Þessar tostadas eru stökkar og dásamlega bragðgóðar ásamt því að vera mjög fljótlegar í bígerð. Tostadas þýðir „ristað“ á spænsku, en rétturinn er mexíkóskur og inniheldur ristaða eða djúpsteikta tortillu. Í þessari uppskrift þá ofnbaka ég bæði tortillurnar og grænmetið, en það er afar fljótleg og mjög þægileg aðferð. Ég er dugleg að prófa mig áfram í grænmetisréttum og þessi er alveg sérlega góður. Uppskrift fyrir tvo. Tvö til þrjú tostadas á mann 6 litlar tortillur, soft ta


BURRITO MEÐ KJÚKLINGI, KÍNÓA & GUACAMOLE
Burrito uppskrift með kjúklingi, kínóa og osti borið fram með sýrðum rjóma og guacamole með cheddar osti. Afar fljótlegur og gómsætur réttur sem krakkarnir elska líka! Fyrir 4 (mæli með 1-2 burrito á mann) 600 g kjúklingalundir 1 lítill laukur, skorinn í strimla 2 msk ólífuolía ½ lime ¼ tsk cayenne pipar ½ tsk cumin 1 tsk salt ½ tsk pipar Stórar tortillur Kínóa Rjómaostur Rifinn cheddar ostur Sýrður rjómi Guacamole með cheddar osti 2 avókadó 1 dl rifinn cheddar ostur ½ lime 1


GÓMSÆT OG KRÖNSÍ VEFJA
Þessi vefja sem er fyllt með kjúklingi, rjómaosti, osti, snakki, kóríandersósu, jalapeno, pinto baunum og borin fram með guacamole, er stórkostlega góð blanda. Innblásturinn að uppskriftinni er Crunchwrap sem fæst á Taco bell. Ég hef reyndar aldrei smakkað þetta þar en hef séð ýmsar útgáfur af þessum rétti og langaði að prófa mína útgáfu og hún er virkilega góð! Crunchwrap er stór tortilla sem er fyllt með allskonar góðgæti. Henni er svo pakkað saman í böku og steikt á pönnu.


TAQUITOS MEÐ KJÚKLINGI & GUACAMOLE
Stökkt taquitos með mjúkri kjúklinga- og ostafyllingu borið fram með guacamole og kóríander sósu. Nammii, þetta er alltof gott! Ef að þið viljið gera uppskriftina ennþá fljótlegri þá er sniðugt að kaupa tilbúna kryddblöndu í staðinn fyrir kryddin á kjúklinginn og skipta kóríander sósunni út fyrir sýrðan rjóma. Uppskrift fyrir 4-5 500-600 g úrbeinuð kjúklingalæri ½ tsk cumin ½ tsk salt ½ tsk hvítlauksduft ½ tsk laukduft ½ tsk paprikuduft ¼ tsk pipar ¼ tsk cayenne pipar 2 msk C


TORTILLU KAKA MEÐ GRASKERI
Súper góður og einfaldur grænmetisréttur. Tortillum er staflað upp í köku og fylltar með ýmsu góðgæti eins og butternut squash, sveppum, lauk, Philadelphia rjómaosti og cheddar osti. Þetta er svo borið fram með guacamole með fetaosti. Grasker er gott með svo mörgu, sérstaklega með þessum dásamlega góðu tortillum. Rjómaosturinn og cheddar gera réttinn svo einstaklega djúsí og góðan. 5 tortillur með grillrönd frá Mission 1 butternut squash 2 msk ólífuolía ½ tsk chiliduft 1 tsk


QUESADILLA MEÐ EDAMAME- & PINTO BAUNUM
Ég gerði þessar ofur ljúffengu og fljótlegu quesadilla í samstarfi við Innnes. Þær eru fylltar með edamame- og pinto baunum, rjómaosti, blaðlauk, spínati, cheddar osti og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Ég geri þessar oft enda eru þær einstaklega fljótlegar í undirbúningi. Mér finnst æðislegt að eiga til edamame baunir í frystinum og alltaf gott að eiga baunir í dós. Fyrir 3-4 Uppskriftin gerir þrjár quesadilla 6 stk tortillur (ég nota Mission tortillur með grillrö


GUACAMOLE MEÐ MANGÓ OG FETAOSTI
Ferskt og gott guacamole með mangó og fetaosti. Berið það fram með tortillaflögum eða með uppáhalds mexíkóska réttinum ykkar. 2 avocado 1/2 sítróna 1/2 dl fetaostur Ólífuolía Salt og pipar 1 chili 2 msk blaðlaukur 1 mangó, smátt skorið Aðferð Blanda saman avocado, sítrónusafa, fetaosti, ólífuolíu, salti og pipar í töfrasprota eða matvinnsluvél. Ef þið ætlið að gera gróft guacamole er betra að stappa innihaldsefnunum saman. Skerið mangó, chili og blaðlauk smátt og blandið sama
bottom of page