top of page

BURRITO MEÐ KJÚKLINGI, KÍNÓA & GUACAMOLE

  • Jan 1
  • 1 min read

Burrito uppskrift með kjúklingi, kínóa og osti borið fram með sýrðum rjóma og guacamole með cheddar osti. Afar fljótlegur og gómsætur réttur sem krakkarnir elska líka!

Fyrir 4 (mæli með 1-2 burrito á mann) 600 g kjúklingalundir 1 lítill laukur, skorinn í strimla 2 msk ólífuolía ½ lime ¼ tsk cayenne pipar ½ tsk cumin 1 tsk salt ½ tsk pipar

Stórar tortillur Kínóa Rjómaostur Rifinn cheddar ostur Sýrður rjómi Guacamole með cheddar osti 2 avókadó 1 dl rifinn cheddar ostur ½ lime 1 msk ferskur kóríander (má sleppa) Salt og pipar Cayenne pipar 1-2 msk rauðlaukur 2 tómatar

Aðferð

  1. Snyrtið kjúklinginn og skerið í minni bita.

  2. Blandið saman ólífuolíu, safa úr lime, cayenne pipar, cumin, salti og pipar og veltið kjúklingnum upp úr blöndunni.

  3. Steikið kjúklinginn og laukinn upp úr ólífuolíu þar til hann verður eldaður í gegn.

  4. Smyrjið rjómaosti á tortillurnar, dreifið 2-3 msk kínóa á þær, kjúklingi og rifnum cheddar osti.

  5. Rúllið tortillunum upp í burrito, penslið með ólífuolíu og bakið í 10 mínútur við 180°C.

  6. Berið fram með gucamole og sýrðum rjóma.

Guacamole með cheddar osti

  1. Blandið avókadó, cheddar osti, safa úr lime, kóríander, salt og pipar með töfrasprota (það er líka gott að stappa þessu saman ef þið eigið ekki töfrasprota).

  2. Skerið rauðlauk og tómata smátt og blandið saman með skeið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page