top of page

ENCHILADAS MEÐ OSTASÓSU OG AVÓKADÓ

  • Jan 1
  • 2 min read

Tortillur fylltar með nautahakki, Philadelphia rjómaosti og blaðlauki, rúllaðar upp og bakaðar inn í ofni. Punkturinn yfir i-ið er að bera þetta fram með heimagerðri ostasósu, avokadó og sýrðum rjóma ásamt nachosflögum. Rétturinn er barnvænn,  svona réttir slá alltaf í gegn hjá börnunum  mínum. Ég elska að gera mat sem öllum finnst góður á heimilinu! Þetta er algjört lostæti.

Fyrir 3 6 Mission tortillur með grillrönd 400-500 g nautahakk 1 lítil krukka salsasósa Krydd (Cayenne pipar, cumin, laukduft, salt og pipar) 1 Philadelphia rjómaostur 4 msk blaðlaukur, smátt skorinn 2-3 msk sýrður rjómi Chili explosion 2-3 tómatar, smátt skornir Rifinn cheddar ostur Rifinn gratín ostur eða annar rifinn ostur Ferskur kóríander

Avókadóstappa 2 stór avókadó (eða meira eftir smekk) Safi úr ½ lime Salt og pipar

Ostasósa 2 msk smjör 1 msk hveiti 2 dl nýmjólk 5 dl rifinn cheddar ostur Cayenne pipar Smá salt

Aðferð

  1. Steikið hakkið á pönnu, kryddið með cayenne pipar, cumin, laukdufti, salti og pipar og hrærið salsasósunni saman við.

  2. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti. Dreifið blaðlauknum yfir og því næst dreifið nautahakki yfir eftir smekk (mér finnst ekki gott að hafa of mikið).

  3. Rúllið upp tortillunum og raðið í eldfast form sem er smurt eða spreyið með Pam olíu.

  4. Smyrjið yfir þær sýrðum rjóma og kryddið með chili explosion. Dreifið tómötunum yfir og stráið rifnum osti yfir allt saman.

  5. Bakið í 15-17 mínútur við 190°C eða þar til osturinn er orðinn gylltur.

  6. Toppið enchiladas með ostasósunni, avókadóstöppunni og ferskur kóríander.

Avókadóstappa

  1. Stappið avókadó og keistið safa úr lime yfir. Saltið og piprið.

Ostasósa

  1. Bræðið smjörið í pott við vægan hita. Hrærið hveitinu saman við og blandið því næst mjólkinni út í.

  2. Hrærið þar til blandan hefur þykknað og bætið cheddar ostinum við. Hrærið þar til osturinn hefur bráðnað og kryddið eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page