MEXÍKÓSKT LASAGNA
- Jan 1
- 2 min read
Ljúffengt og aðeins öðruvísi lasagna. Mig hefur alltaf langað til að prófa að gera mexíkóskt lasagna og gerði loksins mína útfærslu og mikið var það gott. Ég notaði hefðbundnar ítalskar lasagna plötur frá ítalska merkinu De Cecco (fæst í Nettó og Fjarðarkaupum) ásamt nautahakki, salsa sósu, kotasælu, rjómaosti, cheddar osti og ferskum maís. Toppaði það svo með avókdósalsa, ferskum maís, fetaosti og kóríander. Súper djúsí lasagna sem passar vel með rauðvínsglasi.

Fyrir 4 600 g nautahakk Ólífulía 1 laukur, smátt skorinn 2 hvítlauksrif Chili explosion Paprikukrydd Salt og pipar 230 g salsa sósa (ein krukka) De Cecco lasagna plötur 500 g kotasæla (ein stór pakkning) 250 g Philadelphia rjómaostur (ein pakkning) 4 dl rifinn cheddar ostur1 ferskur maískólfur1 msk smjör
1 dl stappaður fetakubbur Cayenne pipar Kóríander eftir smekk, smátt saxað
Avókadó salsa 2 avókadó
10 kokteiltómatar
Safi úr ½ lime
1 msk kóríander, smátt saxað
Aðferð
Byrjið á því að skera laufblöðin af maískólfinum með því að skera af efsta hlutann af (þar sem hann er minnstur um sig) og flettið laufblöðunum af honum.
Leggið maískólfinn í eldfast mót, dreifið smjörinu ofan á og bakið í 30 mínútur við 190°C. Skerið eða skafið maísinn af maískólfinum og skiptið í þrjá hluta.
Steikið laukinn upp úr ólífuolíu við vægan hita. Þegar hann er búinn að mýkjast þá bætið þið við nautahakkinu og pressið hvítlauksrifin út í og kryddið. Hellið salsa sósunni út í og hrærið.
Blandið saman kotasælu og rjómaosti.
Smyrjið eldfast mót (ég notaði steypujárnspönnu) með ólífuolíu og setjið til skiptis lasagnaplötur, hakkið, ostablönduna, rifinn cheddar ost og maís. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og ég. Ath. ekki setja maís ofan á lasagna í lokin.
Bakið lasagnað í 20-25 mínútur við 190°C með blæstri.
Blandið saman ⅓ af maísnum, stöppuðum fetakubbi og cayenne pipar.
Avókadósalsa: Skerið avókadó, tómata og kóríander smátt. Blandið öllu saman og kreistið lime yfir.
Þegar lasagnað er tilbúið þá toppið þið það með avókadó salsa, maís- og fetablöndunni og ferskum kóríander.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes





















Comments