top of page

HALLOWEEN TORTILLUR

3 days ago
1 min read

Þessar krúttlegu halloween tortillur eru tilvaldar í halloween partýið eða sem skemmtilegur kvöldmatur fyrir alla fjölskylduna. Þær eru fylltar með rjómaosti, krydduðum mexíkóskum hrísgrjónum, tómötum og cheddarosti. Bornar fram með fersku guacamole og krydduðum sýrðum rjóma.


Uppskrift fyrir 4–6

Halloween quesadillur

8–12 tortillakökur

150 g Philadelphia rjómaostur

1 pakki Tilda Spicy Mexican Rice (250 g)

150–200 g rifinn cheddarostur

8–10 smátómatar, smátt skornir

½ tsk laukduft

Salt og pipar eftir smekk

Chili eftir smekk (má sleppa)

Ólífuolía


Meðlæti

Kryddaður sýrður rjómi

1 dós sýrður rjómi (180 g)

1–2 msk smátt skorið jalapeno úr krukku (má sleppa)

1/2 tsk laukduft

1/2 tsk hvítlauksduft

Salt og pipar eftir smekk


Ferskt guacamole


Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C með blæstri.

  2. Skerið tvö graskersandlit út í annan helming hverrar tortillaköku með litlum, beittum hníf. Skerið út augu, nef og munn eins og á halloween graskeri.

  3. Smyrjið rjómaosti á hinn helming tortillakökunnar, þar sem graskersandlitin eru ekki.

  4. Dreifið smátt skornum tómötum yfir og kryddið með salti, pipar, laukdufti og chili eftir smekk.

  5. Dreifið hrísgrjónunum jafnt yfir og stráið rifnum cheddarosti yfir.

  6. Leggið útskornu tortillakökurnar ofan á og þrýstið þeim létt saman.

  7. Raðið quesadillunum á bökunarplötu með bökunarpappír, penslið með ólífuolíu og bakið í um 8–12 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og tortillurnar eru orðnar létt gylltar.

  8. Hrærið öllum hráefnunum fyrir sýrða rjóman saman í skál og smakkið til.

  9. Berið quesadillurnar fram með sýrðum rjóma og fersku guacamole.

Gott ráð: Auðveldast er að skera graskersandlitin út áður en tortillurnar eru fylltar. Notið lítinn, beittan hníf og skerið varlega svo tortillurnar rifni ekki.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page