POKE SKÁL MEÐ CHILI RISARÆKJUM
Poke skál er svo þægilegur hádegis- eða kvöldmatur þegar ykkur langar í eitthvað fljótlegt en gott. Hér nota ég Tilda Sticky Rice, chili risarækjur og ferskt meðlæti og toppa með japönsku majónesi og sriracha. Það er líka mjög gott að nota laxatartar í staðinn fyrir rækjurnar.

Fyrir tvo
1 poki Tilda Sticky Rice, 250 g
300 g hráar risarækjur, án skeljar
1 msk. chiliolía, eða eftir smekk
Salt og pipar
½ gúrka
1 avókadó
½ drekaávöxtur eða ½ mangó
2 vorlaukar
Handfylli af ferskum kóríander
1 msk. sesamfræ
Nori-snakk eða 1 nori-blað, skorið í bita
2–3 msk japanskt majónes
Sriracha eftir smekk
1 lime, skorið í báta
Aðferð
Hitið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Ef þið eruð ekki með örbylgjuofn, eins og ég, má hita þau í ofni: Setjið grjónin úr pokanum í lítið eldfast mót, losið þau í sundur með gaffli og bætið við 1–2 msk. af vatni. Hyljið mótið með loki eða álpappír og hitið við 180°C í um 15–20 mínútur, eða þar til grjónin eru heit í gegn. Hrærið í þeim og skiptið í tvær skálar.
Þerrið rækjurnar og blandið þeim saman við chiliolíu, salt og pipar. Hitið pönnu við miðlungsháan hita og steikið rækjurnar í um 2–3 mínútur á hvorri hlið, eftir stærð, þar til þær eru eldaðar í gegn.
Skerið gúrkuna í bita, avókadóið í sneiðar og drekaávöxtinn eða mangóið í bita. Saxið vorlaukinn smátt.
Raðið rækjunum, gúrkunni, avókadóinu og drekaávextinum eða mangóinu ofan á hrísgrjónin.
Dreifið vorlauk, kóríander og sesamfræjum yfir og bætið nori við.
Toppið með japönsku majónesi og sriracha. Berið fram með limebátum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments