top of page

DJÚSÍ & LJÚFFENGAR TÍGRISRÆKJULOKUR

  • Jan 2
  • 1 min read

Þessi réttur er bæði einfaldur og bragðgóður. Pylsubrauð eru orðin vinsæll valkostur fyrir ýmsa rétti og það er líka svo gaman að prófa eitthvað nýtt. En mér finnst algjört must að nota brioche brauð í uppskriftina. Þessi blanda er alveg sérlega góð og þið sem eruð tígrisrækju unnendur þá mæli ég með að eiga þær alltaf til í frystinum. Það er svo gott að grípa í þær og nota í allskyns rétti.

Fyrir tvo 4 brioche pylsubrauð 12 tígrisrækjur Panko rasp Hveiti 1 egg Sítrónupipar Ólífuolía Avókadó Salat Blaðlaukur

Sósa: 1 dl majónes 1-2 msk söxuð steinselja Safi úr ½ sítrónu 1 hvítlauksrif eða hvítlauksduft Nokkrir dropar tapasco sósa Salt og pipar

Aðferð

  1. Pískið egg í eina skál,  hellið hveiti í aðra og raspi í þriðju. Kryddið tígrisækjurnar með sítrónupipar og smá salti og blandið þeim við hveitið þar til þær verða þaktar. Veltið þeim upp úr egginu og svo að lokum raspinu.

  2. Steikið þær upp úr ólífuolíu þangað til að þær verða stökkar  að utan og bleikar að innan.

  3. Rífið salatið og smátt skerið blaðlaukinn og avókadó. Hrærið saman í sósuna.

  4. Hitið pylsubrauðin í ofni og fyllið þau með salatinu, lauknum, avókadó, sósunni og risarækjunum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page