RISARÆKJUR Í KRÖNSI MEÐ AVÓKADÓ DILL SÓSU
- Oct 13, 2025
- 1 min read
Uppskrift að afar góðum risarækjum í snakk krönsi sem eru bornar fram með avókadó sósu með dilli og sýrðum rjóma. Tilvalið sem aðeins öðruvísi forréttur eða léttur réttur yfir hátíðarnar. Ég þakti rækjurnar með hummus snakki frá Eat real með dill bragði sem passar sérlega vel með risarækjunum. Snakkið er gert úr kjúklingabaunum og er einnig ótrúlega gott eitt og sér. Það er vegan, glúten frítt og 40% fituminna en venjulegt snakk.

600 g stórar tígrisrækjur frá Sælkerafiski 8 dl Eat real hummus snakk með dilli Ólífuolía/Pam sprey Salt & pipar 2 egg 1 dl spelt Sósa 2 avókadó 2 msk sýrður rjómi Safi úr 1 lime 2 msk ferskt dill Salt og pipar
Aðferð
Setjið snakkið í poka og rúllið yfir með kökukefli svo það verði að mulningi.
Veltið tígrisrækjunum upp úr ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Næst veltið þeim upp úr speltinu, egginu og að lokum snakkinu. Mér finnst gott að nota tangir.
Dreifið rækjunum í eldfast form þöktu bökunarpappír og spreyið þær með Pam spreyi eða dreifið ólífuolíu yfir þær.
Bakið í ca 5-6 mínútur við 200°C eða þar til þær eru orðnar stökkar að utan.
Á meðan rækjurnar bakast þá útbúið þið sósuna. Blandið saman avókadó, sýrðum rjóma, safa úr lime, dilli, salti og pipar með töfrasprota. En það er einnig hægt að stappa saman avókadó, saxa dill smátt og hræra saman við hin hráefnin.
Stráið fersku dilli yfir rækjurnar og berið fram með sósunni. Njótið!
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti










Comments