top of page

RÆKJUSALAT MEÐ RISARÆKJUM

  • Oct 8, 2025
  • 1 min read

Dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að  nota risarækjur en þær eru skornar smátt  sem gerir áferðina svo góða. Mæli með að bera þetta fram á ristuðu súrdeigsbrauði eða öðru góðu brauði með avókadó og sítrónusafa.



350 g frosnar risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 5 soðin egg 1/2 – 1 dl Heinz majónes (eða eftir smekk) Chili flögur, salt og pipar 1 msk fersk steinselja Gott brauð (t.d. súrdeigsbrauð) Avókadó Sítrónusneiðar Steinselja


Aðferð

  1. Byrjið á því að afþýða risarækjurnar. 

  2. Dreifið þeim á ofnplötu þakta bökunarpappír og hellið ólífuolíu, chili flögum, salti og pipar eftir smekk.

  3. Bakið inní ofni við 180°C í 5-6 mínútur eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn.

  4. Setjið egg, risarækjur, majónes, salt, pipar og steinselju á skurðarbretti og skerið smátt. Bætið við majónesi eftir smekk.

  5. Berið fram á góðu brauði með avókadó, sítrónusneiðum og skreytið með steinselju. Njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page