top of page

RAMEN MEÐ MISO, CHILIOLÍU & KJÚKLINGI

Oct 21
2 min read

Það er fátt betra en heit núðlusúpa þegar kólnar úti. Þessi er bragðmikil og gómsæt með miso, kókosmjólk og chiliolíu, borin fram með stökkum kjúklingi og linsoðnum eggjum. Kreistið smá lime yfir í lokin. Það er líka gott að skipta kjúklingnum út fyrir tófú eða sveppi.

Fyrir 3–4

Kjúklingur

3–4 kjúklingalæri með skinni

1–2 tsk ólífuolía

½ tsk engiferduft

Salt og pipar

Súpa

2 skalottlaukar, skornir í þunnar sneiðar 2 vorlaukar, hvíti og græni hlutinn aðskildir

3 hvítlauksrif, smátt söxuð

1 msk ferskt engifer, rifið

946 ml kjúklingasoð (frá Bowl & basket)

1 dl kókosmjólk

2 msk ljóst miso (Hikari Miso shinshu white miso)

1–2 tsk chiliolía, meira eftir smekk

Sojasósa eftir smekk

250 g eggjanúðlur


Toppa með:

3–4 linsoðin egg

Græni hlutinn af vorlauknum, skorinn í þunnar sneiðar

Sesamblanda

Chiliolía eftir smekk

Lime


Aðferð

  1. Þerrið kjúklinginn vel og kryddið með engiferdufti, salti og pipar.

  2. Hitið ólífuolíuna í rúmgóðum potti eða á djúpri pönnu við miðlungshita. Leggið kjúklinginn með skinnið niður og steikið í um 6 mínútur, þar til skinnið er smá gullið og stökkt. Snúið og steikið í 1–2 mínútur á hinni hliðinni.

  3. Færið kjúklinginn í eldfast mót með skinnið upp. Bakið við 200°C með blæstri í um 25–35 mínútur ef lærin eru með beini, eða 15–20 mínútur ef þau eru beinlaus, þar til þau eru fullelduð. Tíminn fer eftir stærð læranna. Látið hvíla í 5 mínútur, losið kjötið af beinunum ef þarf og skerið í bita.

  4. Hellið umframfitu af pönnunni en skiljið eftir um 1 msk. Steikið skalottlaukinn og hvíta hluta vorlauksins þar til laukurinn er mjúkur. Bætið hvítlauk, fersku engifer og chili olíu við og steikið í eina mínútu til viðbótar.

  5. Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna og skafið upp brúnaða steikingarbotninn. Bætið kókosmjólkinni við og látið malla rólega í um 5 mínútur.

  6. Takið pönnuna af hitanum. Hrærið miso út í nokkrar skeiðar af heitu soðinu í skál og hellið síðan saman við súpuna. Smakkið til með sojasósu ef þarf.

  7. Sjóðið eggin í um 5-6 mínútur, kælið í köldu vatni, afhýðið og skerið í tvennt. Sjóðið núðlurnar sér samkvæmt leiðbeiningum á pakka og látið renna vel af þeim.

  8. Skiptið núðlunum á milli skála og hellið heitu soðinu yfir. Bætið kjúklingnum og eggjunum við. Toppið með vorlauk, sesamblöndu og chiliolíu og berið fram með lime bátum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna

Comments


bottom of page