KRISPÍ TÚNFISKSKÁL
- Feb 8
- 1 min read
Fljótlegur og bragðgóður réttur sem er tilvalinn í hádeginu eða sem léttur kvöldverður. Stökk hrísgrjón, túnfiskur, japanskt majónes, Sriracha, gúrka og avókadó er ljúffeng blanda.. Ég sá þessa hugmynd á TikTok og varð strax heilluð – hún er svo góð að ég varð að deila henni með ykkur! Ef þú ert að leita að einhverju nýju og spennandi, þá er þetta fyrir þig.

Fyrir einn 3 dl hrísgrjón, elduð 1-2 msk sojasósa 1 msk sesamolía 1 msk Tabasco Sriracha sósa eða magn eftir smekk 1 túnfiskdós (100-180 g túnfiskur) 2-3 msk japanskt majónes 1 msk Tabasco Sriracha sósa eða magn eftir smekk Pipar eftir smekk Gúrka eftir smekk 1/2 avókadó
Kóríander eftir smekk Everything bagel krydd, Sesamgaldur eða annað sambærilegt krydd
Aðferð
Byrjið á því að blanda saman hrísgrjónum, sojasósu, sesamolíu og Sriracha sósu.
Dreifið hrísgrjónunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 25-30 mínútur við 190°C eða þar til hrísrjónin eru orðin stökk og gyllt.
Opnið túnfiskdósina og tæmið vökvann. Blandið túnfisknum saman við japanskt majónes, Tabasco Sriracha sósu og kryddið með pipar eftir smekk.
Skerið gúrkuna og avókadó í bita.
Setjið hrísgrjónin í botn á skál, leggið túnfisk blönduna ofan á þau og bætið síðan við gúrku, avókadó, kóríander og kryddið með Everything bagel kryddi.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments