DUMPLINGS MEÐ NÚÐLUM & GRÆNMETI
Hafið þið smakkað dumplings með núðlum? Það er geggjað kombó! Hér kemur kjúklinga dumplings með eggjanúðlum, grænmeti og ljúffengri sósu. Þessi dumplings frá Itsu eru svo góð!

Uppskrift fyrir 2 1 pakkning dumplings með kjúklingi frá Itsu 2-3 hreiður af eggjanúðlum frá Blue dragon (½ pakkning) 2-3 gulrætur 4-6 sveppir 1 chili 1 msk ferskur engifer 1-2 hvítlauksrif 4 vorlaukar Ólífuolía til steikingar Salt & pipar Sósa: 1 msk sesamolía frá Blue dragon 1 msk soya sósa2 msk ostrusósa frá Blue dragon Safi úr ½ lime 2 msk ólífuolía Toppa með: 2 msk kasjúhnetur, smátt saxaðar 1 vorlaukur, smátt saxaður 1 msk sesamfræ Ferskur kóríander eftir smekk
Aðferð
Sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum.
Skerið gulrætur, sveppi, vorlauk og chili smátt.
Rífið engifer og pressið hvítlaukinn.
Byrjið á því að steikja gulrætur upp úr ólífuolíu í 5 mínútur. Bætið svo sveppum, vorlauk og chili.
Bætið dumplings útí, hvítlauk og engifer. Blandið öllu saman og steikið í 10 mínútur.
Hrærið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál.
Bætið núðlunum og sósunni saman við á pönnuna og blandið vel saman.
Toppið svo með kasjúhnetum, vorlauk, sesamfræjum og kóríander.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments