KJÚKLINGABORGARI MEÐ BRIE & RAUÐKÁLSHRÁSALATI
- Jan 1
- 1 min read
Þessi kjúklingaborgari er svo sannarlega ljúffengur að þið verðið alls ekki svikin af honum. Ég mæli svo mikið að þið prófið. Panko raspið og brie osturinn passa svo vel saman. Rauðkálshrásalatið setur svo punktinn yfir i-ið! Þetta rauðkálshrásalat er oft gert á mínu heimili, hvort sem það er með borgara eða á taco.

Uppskrift fyrir tvo
1-2 kjúklingabringur
Panko brauðraspur
1 egg
Salt og pipar
Krydd eftir smekk
Smjör
2 brioche hamborgarabrauð
Brie ostur
Tómatur
Avocado
Rauðkálshrásalat
5 dl ferskt rauðkál
3 msk majónes
1½ msk jalapeno úr krukku
Aðferð
Pískið egg í skál og dreifið raspi á stóran disk.
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verða tvær þunnar sneiðar og kryddið þær.
Veltið þeim upp úr egginu og síðan raspinum.
Skerið smjör í litla teninga og dreifið í botninn á eldföstu móti. Leggið kjúklinginn ofan á smjörið og dreifið svo fleiri smjörteninga ofan á hann.
Bakið í u.þ.b. 30 mínútur við 190°C eða þar til kjúklingurinn er næstum fulleldaður.
Skerið brie í sneiðar og dreifið þeim ofan á bringurnar. Setjið bringurnar aftur inn í ofn og bakið í 5-8 mínútur, þar til osturinn er bráðnaður.
Hitið hamborgarabrauðin í ofni og dreifið hrásalatinu á botninn. Setjið kjúkling, tómata, avocado og lokið borgaranum.
Rauðkálshrásalat
Blandið saman majónesi, jalapeno og salti með töfrasprota eða matvinnsluvél. Skerið rauðkálið í ræmur og blandið saman við jalapenomajónesið með skeið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments