SÆTKARTÖFLU-& KJÚKLINGABORGARI
- Jan 1
- 1 min read
Sætar kartöflur og kjúklingur passa sérlega vel saman. Þessi réttur er bæði mjög bragðgóður og í hollari kantinum. Ég nota sætar kartöflur í staðinn fyrir brauð og fylli með kjúklingi, fetaosti, avókadó, salati, tómatsneiðum, spírum og ljúffengri sósu. Þetta er einfalt og þægilegt að útbúa og tekur um 30 mínútur. Það er þægilegt að undirbúa meðlætið á meðan kjúklingurinn og sætu kartöflurnar bakast í ofninum.

Fyrir 2 1 stór sæt kartafla Ólífuolía 2 kjúklingabringur Salt og pipar Fajita krydd 1 stórt avókadó, stappað Salat Fetakubbur Tómatur, skorinn í sneiðar Alfa alfa spírur
Sósa 3 msk majónes 1-2 tsk sambal oelek
Aðferð
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt svo úr verði fjórar sneiðar úr tveimur bringum. Berið ólífuolíu á þær og kryddið með salti, pipar og fajita kryddblöndu. Bakið í ofni við 190°C í 15 mínútur.
Stappið fetakubbinn (magn eftir smekk) og dreifið yfir kjúklinginn. Setjið kjúklinginn aftur inn í ofn og bakið í ca. 10-15 mínútur eða þar til hann er orðinn fulleldaður.
Skerið sætu kartöfluna í átta sneiðar. Penslið olíu á þær og kryddið með salti og pipar.
Leggið þær á ofnplötu sem er þakin bökunarpappír og bakið í 20 mínútur á 190°C.
Takið kartöflusneiðarnar úr ofninum, smyrjið fjórar sneiðar með avocado og dreifið salati yfir.
Setjið kjúklinginn ofan á, tómatsneið, sósu, spírur og í lokin leggið sneið af sætri kartöflu ofan á. Mæli með að gera tvo borgara á mann.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti


Comments