BORGARI MEÐ RIFNUM BBQ KJÚKLING
- Jan 1
- 1 min read
Updated: Feb 8
Grillaður og rifinn kjúklingur í Sweet BBQ sósu með hrásalati, tómatöum, avókadó sett í hamborgarabrauð. Ég bar þetta fram með grilluðum maískólfum með parmesan osti, kartöflubátum og Corona bjór með lime. Þetta á allt svo vel saman!

Fyrir 4 600 g úrbeinuð kjúklingalæri 3 msk Heinz BBQ Sweet sósa + 2 msk aukalega 2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Salt og pipar 6 dl blaðsalat 6-7 dl hvítkál 6 msk Heinz majónes 1-2 msk Tabasco Sriracha sósa 1 stór buffalo tómatur 1-2 avókadó 4 hamborgarabrauð
Meðlæti 4 maískólfar Smjör Parmesan ostur Cayenne pipar Kartöflubátar
Aðferð
Blandið 3 msk af BBQ sósu, hvítlauksrifjum, salti og pipar saman við kjúklinginn í skál. Gott að leyfa honum að marinerast í klst eða lengur.
Grillið kjúklinginn þar til hann verður fulleldaður og lífið hann niður með tveimur göfflum.
Skerið blaðsalat og hvítkál í ræmur og blandið saman við majónes og Tabasco Sriracha sósu. Mæli með að smakka sósuna til.
Skerið tómata og avókadó í sneiðar.
Grillið hamborgarabrauðin og dreifið hrásalatinu á botninn. Setjið kjúklinginn, tómatsneið, avókadó og lokið borgaranum.
Meðlæti
Látið maískólfana liggja í bleyti (í vatni) í klst. Bakið í ofni í 20 mínútur við 190°C. Grillið í 10 mínútur.
Dreifið smjöri, rifnum parmesan osti og cayenne pipar á maískólfana eftir smekk.
Bakið kartöflubátana í ofni.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments