top of page
Search


EINFALDUR BBQ KJÚKLINGABORGARI
Klassískur réttur sem ég hef gert í mörg ár. Tekur enga stund að útbúa, er svo ljúffengur og allir í fjölskyldunni elska hann. Það er einnig mjög gott að grilla kjúklinginn en annars er afar fljótlegt að elda hann í ofninum. Ef þú vilt einfalda hlutina, er alltaf þægilegt að nota tilbúna sósu, en ég mæli með að prófa heimagerðu sinnepssósuna til að fullkomna máltíðina. 3 kjúklingabringur, skornar í tvennt 1 dl Hunt's Original BBQ sósa 1 tsk salt 1/4 tsk pipar Cheddar ostsneið


BORGARI MEÐ RIFNUM BBQ KJÚKLING
Grillaður og rifinn kjúklingur í Sweet BBQ sósu með hrásalati, tómatöum, avókadó sett í hamborgarabrauð. Ég bar þetta fram með grilluðum maískólfum með parmesan osti, kartöflubátum og Corona bjór með lime. Þetta á allt svo vel saman! Fyrir 4 600 g úrbeinuð kjúklingalæri 3 msk Heinz BBQ Sweet sósa + 2 msk aukalega 2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Salt og pipar 6 dl blaðsalat 6-7 dl hvítkál 6 msk Heinz majónes 1-2 msk Tabasco Sriracha sósa 1 stór buffalo tómatur 1-2 avókadó 4


LJÚFFENGUR PARMESAN KJÚKLINGABORGARI
Ó vá hvað þessi kjúklingaborgari er góður! Parmesan ostur er svo góður og hvað þá sem hjúpur utanum kjúkling í stökku brauði með mozzarella, basilíku, tómötum, klettasalati og hvítlaukssósu. Dásamleg blanda sem þið sjáið ekki eftir að prófa og gefur réttinum þennan ítalska ferskleika. Fyrir 3-4 3 kjúklingabringur 1 ½ dl Panko rasp 1 ½ dl parmesan ostur 1 egg Cayenne pipar Salt og pipar Ferskur mozzarella ostur, 2 stórar kúlur Klettasalat eða salatblanda Tómatar Fersk basilika
bottom of page